Vísindagjöf fyrir börn
Vatnseldflaugin
Vatnseldflaugin er íslensk vísindavara fyrir börn, fjölskyldur og kennara. Hún notar vatn og loftþrýsting til að skjóta lítilli eldflaug á loft og sýnir þrýsting, kraft, skriðþunga og lögmál Newtons á skemmtilegan hátt.
Hentar hún sem afmælisgjöf eða sumargjöf?
Já. Vatnseldflaugin hentar vel fyrir forvitin börn sem hafa gaman af vísindum, útiveru, smíðum og tilraunum. Hún er sérstaklega góð gjöf fyrir börn sem vilja sjá hlutina gerast í alvöru, ekki bara lesa um þá.
Hvað gerir þetta betra en random dót af Amazon?
Þetta er ekki bara hlutur í kassa. Með Vatnseldflauginni fylgir íslenskt samhengi, íslenskt námsefni á tilraunir.is og staðbundin þjónusta. Markmiðið er ekki bara að selja leikfang, heldur að byggja upp verklega vísindamiðlun á Íslandi.
Hvað kostar hún?
Vatnseldflaugin kostar 2990 kr. auk sendingar innanlands. Oft er hægt að finna ódýra eða fría afhendingu á höfuðborgarsvæðinu með samkomulagi.
Er hún örugg?
Vatnseldflaugin á að vera notuð utandyra með fullorðnum. Ekki á að miða á fólk, dýr, bíla, glugga eða viðkvæma hluti. Best er að nota opið svæði. Algengasta vandamálið er að eldflaugin geti lent uppi á þaki eða að plastvængir brotni ef hún lendir harkalega á malbiki. Auka plaststykki fylgir í kassanum.
Hver stendur á bak við þetta?
Vatnseldflaugin er seld af Vísindamiðlun ehf. Verkefnið er byggt upp af eðlisfræðingi sem vill gera raunvísindi aðgengilegri, sýnilegri og skemmtilegri fyrir börn og fjölskyldur á Íslandi.