Verklegar tilraunir
Veldu tilraun, skráðu mælingar og uppgötvaðu lögmál eðlisfræðinnar.

1. Burðarþol pappírsbáts
Hversu margar einakrónur getur pappírsbátur borið áður en hann sekkur?
Aflfræði · Kraftar

2. Skoppstuðull skopparabolta
Mælið hversu hátt bolti skoppar eftir að honum er sleppt úr mismunandi hæðum. Finnið sambandið milli skopphæðar og fallhæðar og notið það til að spá fyrir um næstu skopp.
Aflfræði · Kasthreyfing

3. Vatnseldflaug
Fyrir hvaða magn af vatni kemst vatnseldflaugin sem hæst?
Aflfræði · Kasthreyfing · Kraftar · Orka

4. Hárpípuáhrif í klósettpappír
Í þessari tilraun sjáum við hvernig vatn sogast upp í klósettpappír vegna hárpípuáhrifa. Markmið tilraunarinnar er að finna hvaða stærðfræðilega líkan lýsir líkaninu best.
Aflfræði · Kraftar · Þrýstingur · Vökvar

5. Hljóðhraðinn
Í þessari tilraun er hraði hljóðsins í lofti mældur með tveimur símum, phyphox Acoustic Stopwatch og málbandi. Klappað er einu sinni við hvorn síma, tímarnir bornir saman og hljóðhraðinn reiknaður út frá tímamuninum.
Bylgjur · Hljóð

6. Grunntónn vatnsflösku
Í þessari tilraun blásið þið yfir stútinn á glerflösku og mælið tíðnina á tóninum sem myndast. Síðan bætið þið vatni smám saman í flöskuna og skoðið hvernig tónninn breytist þegar loftrúmmálið í flöskunni minnkar.
Bylgjur · Hljóð · Sveiflur · Vökvar

7. Eigintíðni gítarstrengs
Mældu tíðni gítarstrengs fyrir mismunandi lengdir og skoðaðu hvort einfalt samband birtist í gögnunum.
bylgjur · hljóð · tíðni · gítar

8. Hversu hátt er húsið þitt?
Mældu hæð byggingar með myndmælingu, priki og hornmælingu með phyphox.
rúmfræði · mælingar · horn · phyphox

9. Að mæla geisla jarðarinnar með tvöföldu sólarlagi
Í þessari tilraun mælum við geisla jarðarinnar með tvöföldu sólarlagi og einfaldri rúmfræði.
Snúningar · Ljós · Aflfræði

10. Körfuboltaskot
Mældu feril körfubolta í myndbandi og notaðu stuðla grafa til að finna hraða og bera hröðunina saman við g.
hreyfing · kasthreyfing · myndband · íþróttir

11. Arkímedes og gullkóróna Hiero konungs
Hvernig er hægt að mæla rúmmál hlutar sem hefur óreglulega lögun?
Vökvar

12. Eðlisvarmi vatns
Mældu hvernig vatn hitnar, áætlaðu eðlisvarma vatns og skoðaðu varmajafnvægi þegar heitu vatni er bætt við kalt vatn.
varmi · hitastig · vatn · orka